Þannig hljómar kynning Kristjáns hjá Landskjörstjórn:
Baráttumál mitt á Stjórnlagaþingi verður að skilja að framkvæmdavald og löggjafarvald, þannig að ráðherrar sitji ekki á þingi og drottni yfir löggjafanum. Ógöngur okkar Íslendinga undanfarna áratugi má að miklu leyti rekja til þess, að framkvæmdavaldið sjálft hefur samið lögin sem það svo starfar eftir. Ég tel að þekking mín og reynsla af verkfræði, lífeðlisfræði og fyrirtækjastjórnun komi að góðum notum við þetta og önnur mikilvæg mál á Stjórnlagaþinginu. Það er von mín að allir þeir sem kosnir verða til þingsins láti sérhagsmuni til hliðar og einbeiti sér að endurskoðun stjórnarskrárinnar, með hag allra Íslendinga að leiðarljósi.

Kristján á stjórnlagaþing: Heiðarleg tilraun, en tókst ekki að ná kjöri